sunnudagur, júlí 31, 2005

Sumarfríið mitt 2008

Einhver sem á 13 milljónir til að lána mér? Virgin Galactic er nefnilega farið að taka við pöntunum í flug frá og með 2008... Út í geim!
 
Þarf ekki nema 1.300.000 ISK til að festa sæti, þ.a. maður hefur nokkur ár til að safna upp í restina. Nánast gefins, og alveg málið :)

sunnudagur, júlí 24, 2005

Músík á tölvunni

Stutta útgáfan:
Ef þú tekur (öryggis) afrit af músík, gleymdu MP3, notaðu FLAC.
 
Langa útgáfan:
Vandamálið í dag er að mínu mati það að flestir sem taka afrit af músíkinni sinni nota lossy formatt eins og M4A (iTunes) eða WMA (Media Player) eða það lang lang algengasta, MP3. Það þýðir einfaldlega að lagið sem þú átt á tölvunni er í lélegri gæðum en það sem er á geisladisknum.

Tvær ástæður fyrir því af hverju ég er ekki hrifinn af því:

1)  Góðar stofugræjur geta engan veginn bjargað lagi í lélegum gæðum. Ef maður vill góð hljómgæði, þá þýðir ekki að nota lossy formatt eins og MP3. Þetta skiptir mig máli því öll mín músík er komin á tölvuna inn í stofu, tengda við græjurnar.
Þetta er líka ástæðan fyrir því að ég versla ekki hjá vefum eins og tonlist.is, ef ég er að kaupa eitthvað, þá vil ég að gæðin séu í lagi.

2)  Í upphafi var MP3, nú eru AAC, OGG, WMA, ASF, M4A o.s.frv. og fleiri (sífellt betri) munu að sjálfsögðu koma. Ef þú síðan lendir í því að þurfa að breyta lagi úr einu lossy formatti yfir í annað, t.d. OGG yfir á M4A til að spila í iPodnum þínum, þá taparðu enn meiri gæðum (eins og að kópera videospólu yfir á aðra vídeóspólu, en iTunes að sjálfsögðu segir þér ekkert frá þessu þegar það býðst til að converta músíkinni þinni).

Lausin er að nota lossless format, tónlistin á tölvunni er þá nákvæmlega eins og á geisladisknum. Það er svo að auki minnsta mál að varpa yfir í lossy formatt eftir þörfum. Bara geyma orginalinn að sjálfsögðu, nema maður sé að varpa yfir í nýtt og betra lossless ;) Hér er líka hægt að velja úr nokkrum, t.d. Monkey's Audio, Apple Lossless og mitt uppáhald, FLAC. Ókosturinn er að lögin taka meira pláss (27 MB að meðaltali hjá mér), en þar sem það samsvarar ca. 1 kr (ISK) per lag m.v. verð á hörðum diskum í dag, þá finnst mér það vel þess virði. Ég nefndi svo tonlist.is áðan... Metallica, sem eru nú ekki hrifnir af MP3 (af allt öðrum ástæðum reyndar :) selja tónleikaupptökur á FLAC formi á vefnum hjá sér. Tveggja tíma og korters tónleikar í Egilshöll í CD gæðum á $13.
Svona á að gera þetta að mínu mati.

 
Það sem ég nota...
... er Exact Audio Copy til að taka afrit af músík inná tölvuna (í .wav), dBpowerAMP til að kóða yfir í FLAC og loks Tag & Rename til að setja inn upplýsingar um lagið (album, artist, track o.s.frv.). FLAC codec þarf að vera sett upp, það fæst hér.

Varðandi spilara, þá er ég nýlega farinn að nota musikCube, sýnist hann henta afskaplega vel fyrir fólk (eins og mig) sem er með helling af músík (svo framarlega sem tögin eru rétt). Þægileg flokkun, einfalt að leita og hraðvirkt. Svo er bara spurning hvort ég geti ekki komið mér í að skrifa Bluetooth plugin fyrir símann :)

mánudagur, júlí 04, 2005

Gleði

Búinn að vera duglegur undanfarið... 2ja vikna frí á Íslandi og Roskilde festival um helgina. Stuð... :)
Stórfínt frí annars, það lengsta sem ég hef tekið frá vinnu hingað til. Náði meira að segja að haga mér aðeins eins og alvöru túristi... Rölti upp Keili og Esju, fór í Bláa Lónið, útilegu í Skaftafelli, tók þátt í 17. júní gleði, borðaði fínan grillmat og skrapp eylítið út á lífið...
Alltaf gott að kíkja heim, en ég fer svo væntanlega ekki aftur fyrr um jólin...

Helginni var svo varið í Roskilde (tók smá forskot á fimmtudaginn en fór svo aftur heim í bælið um kvöldið)... Gat ekki sleppt þessu, var nefnilega svo heppinn að hitta Bjarna á Ölstofunni meðan ég var heima og hann var svo almennilegur að bjóða mér gistingu.
Fín músík, furðuleg músík, mikil gleði og fullt fullt (fullt) af fólki... Veðrið líka svakalega fínt, ríflega 20° og sól...
Audioslave með bestu músíkina að mínu mati, tóku líka inn á milli eitthvað af gömlu lögunum sínum, Tom Morello (Rage Against The Machine) snillingur á gítarnum og Chris Cornell (Soundgarden) lítið síðri...
Green Day voru með flottustu tónleikana, heilmikið show. Megnið var af nýju American Idiot sem mér finnst þrælfín, en eitthvað af gömlum smellum. Voru nokkuð flottir á því, skiptu t.d. út allri hljómsveitinni í miðju lagi með sjálfboðaliðum úr crowdinu og leyfðu þeim að klára lagið... Gítarleikarinn fékk svo að eiga gítarinn... Mjög töff...
Foo Fighters voru mjög sterkir líka, þó tónleikarnir væru bara klukkutími. Hellingskraftur í þeim Dave Grohl og Taylor Hawkins (á trommum).
Gaman að sjá Velvet Revolver. Slash, Duff og Matt úr G'N'R og Scott Weiland úr Stone Temple Pilots, en rokkið er bara ekki eins án Axl...
Kent voru verulega flottir (sá reyndar bara brot af þeim fimmtudagskvöldið, þurfti heim að sofa ;) Þarf endilega að kíkja á þá aftur við tækifæri.
Jimmy Eat World fínir, Ozzy magnaður, Jamie Cullum skemmtilega spes, en merkilegt nokk voru Duran Duran lítið spes ('stor skuffelse' eins og Urban sagði). Klassísk músík, en Simon bara pikkfastur í '83...
 
Gríðargaman, og ef böndin (og veðurspáin) verða álíka spennandi næsta ár er ólíklegt að ég hangi heima... :)