föstudagur, apríl 29, 2005

Gúrka

Fátt í fréttum, róleg helgi... Sem var ágætt, slaka á eftir átökin á klakanum síðustu helgi (skrapp heim og kíkti á árshátíð hjá Marorku). Skreppitúr til Þýskalands svo á morgun, í 'boði' vinnunar. Líklega þrír dagar, og líklega til Berlínar... Stuð...

P.S.
Var að kíkja á veðurspána, stefnir í 30° í Berlín á morgun, jæks...

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Tíví

Ekki leiðinlegt að fá heilan klukkutíma af Scrubs á hverjum degi. Fínir þættir fyrir okkur sem höfðu gaman af Parker Lewis í gamla daga...

Annars, klakinn um helgina ;)

 

laugardagur, apríl 09, 2005

Innlit / útlit

Mamma og pabbi kíktu í heimsókn síðustu helgi og ég var því tilneyddur að taka ögn til. Nýtti tækifærið til að smella af nokkrum myndum af íbúðinni og útsýninu...