fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Stjörnuspáin

VOG 23. september - 22. október
Vertu á varðbergi gagnvart eyðslusemi
í dag, þú gætir misst stjórn á þér.
Græjur og dellutæki freista þín ákaflega,
enda bæði nútímaleg og sniðug.
[mbl]

Nokkuð að marka þetta??

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Fréttir!

Loksins sem ég get opinberað tíðindin... þó ég sé búinn að lauma þessu að ýmsum. Í stuttu, þá ætla ég að yfirgefa klakann, aftur... flytja til Köben, aftur... og fara að vinna hjá finnska stígvélaframleiðandanum fyrrverandi Nokia :)
Mikil spenna, fer út í lok janúar þ.a. nú þarf maður að koma sér í að selja (leigja?) íbúð, selja (taka með?) bíl, finna íbúð... og standa í öðru tilheyrandi stússi (versla hjól?). Að ég tali nú ekki um vinnuna, klára mitt af sem best ég get, skilja vel við þetta. Þó ég reikni nú fastlega með að slatti fylgi mér með út.

Læt þetta duga að sinni, þarf að koma mér í að þrífa eylítið áður en fasteignasalinn mætir með myndavélina á morgun...

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Afsakið hlé

Tíðindi innan tíðar... :)